Hér er hægt að skoða einstakar íbúðir og fá frekari upplýsingar um verð, stærð og skipulag. Ýmist er hægt að kalla fram íbúðir eftir fjölda herbergja eða með því að smella beint með bendli á viðkomandi íbúð.
Íbúðir á A-svæði til sölu núna
Smelltu á íbúðirnar sem nú eru í sölu á svæði A og fáðu nánari upplýsingar.
Haltu bendlinum yfir þeirri hæð sem þú vilt skoða betur.
Rut Káradóttir innanhússarkitekt sá um að velja saman efni og liti á innréttingum, flísum og borðplötum. Rut útskrifaðist frá Istituto Europeo di Design í Róm árið 1993 og hefur unnið bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Innréttingar eru hannaðar af GKS og smíðaðar af Nobilia í Þýskalandi. Flísar eru frá gæðaframleiðandanum Marazzi. Þrjár mismunandi litasamsetningar á innréttingum, borðplötum, flísum og höldum eru í boði þar sem eldhús-, bað-, svefnherbergis- og forstofuskápar eru í sama lit og áferð þar sem það á við.
Fallegur og skjólsæll garður prýðir miðju hverfisins og í gegnum hann liggur reiðhjóla- og göngustígur sem tengist vel samgöngukerfi borgarinnar. Garðurinn er gróðursæll, með reiðhjólaskýlum, leiksvæði og hreyfistöð. Kaffihús verður staðsett á jarðhæð í Efstaleiti 25 og þar verður einnig gengið beint út í garðinn.
Bílastæði í bílageymslu fylgja íbúðum sem eru stærri en 60 m². Bílageymslur eru neðanjarðar, tengdar stiga- og lyftuhúsum. Kaupendur geta keypt bílastæði í bílageymslum, fjöldi er þó takmarkaður. Einnig eru 24 bílastæði ofanjarðar á lóð fyrir íbúa og gesti. Deilibílaþjónusta verður aðgengileg fyrir íbúa svæðisins.
Við hönnun húsa er áhersla lögð á vandað og fallegt heildaryfirbragð. Húsin eru að stærstum hluta klædd sléttri álklæðningu og eru með mismunandi lit og áferð.
Svalir fylgja íbúðum og eru ýmist forsteyptar, þaksvalir, franskar svalir eða verönd.
Í öllum íbúðum er vandað ál- og trégluggakerfi. Allt gler er háeinangrandi samkvæmt ákvæðum byggingareglugerðar og er glerið með 5 ára framleiðsluábyrgð. Litur á tréhluta glugga er hvítur, álið er í lit sem valinn er af arkitektum húsanna.
Allir léttir milliveggir eru byggðir að mestu leyti úr LEMGA léttsteypusteinum frá Steypustöðinni. Steinninn inniheldur ekki lífræn efni og því er ekki hætta á að það myndist mygla.
Inngangshurðir íbúða uppfylla kröfur um hljóðeinangrun. Innihurðir eru með góðri hljóðeinangrun og yfirfelldum hurðakörmum og gerektum. Hurðir eru frá Herholtz og umboðsaðili er BYKO.
Íbúðir eru upphitaðar með ofnhitakerfi og loftræstar með vélrænu útsogi.
Gólf í baðherbergi og þvottahúsi eru flísalögð. Kaupandi getur óskað eftir að íbúð sé afhent með parketi gegn greiðslu.
Í eldhúsi er Nobilia eldhúsinnrétting frá trésmiðjunni GKS. Eldhúsinnréttingin er fullbúin með blöndunartækjum og innbyggðum eldhústækjum til að tryggja gott heildarútlit. Eldhús er afhent með spanhelluborði, viftu í innréttingu eða eyjuháfi yfir helluborði þar sem það á við, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og ofni. Eldhústæki eru þýsk gæðaframleiðsla. Umboðsaðili tækja er trésmiðjan GKS.
Í íbúðum eru hreinlætis- og blöndunartæki frá Grohe og Gustavsberg. Sturtuþil er úr hertu gleri þar sem það á við. Umboðsaðili tækja er BYKO.
Hafðu samband við neðangreinda söluaðila til að fá nánari upplýsingar um íbúðir í Efstaleitinu.
www.eignamidlun.is
eignamidlun@eignamidlun.is
(+354) 588 9090
www.eignamidlun.is • eignamidlun@eignamidlun.is • (+354) 588 9090
Brynjar Þór Sumarliðason
Löggiltur fasteignasali
896 1168
brynjar@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
864 5464
gudlaugur@eignamidlun.is
Þórarinn M. Friðgeirsson
Löggiltur fasteignasali
899 1882
thorarinn@eignamidlun.is
www.fstorg.is
torg@fstorg.is
(+354) 520 9595
www.fstorg.is • torg@fstorg.is • (+354) 520 9595
Hafdís Rafnsdóttir
Löggiltur fasteignasali
820 2222
hafdis@fstorg.is
Sigurður Gunnlaugsson
Löggiltur fasteignasali
898 6106
sigurdur@fstorg.is